Loksins bloggNanna Kristín Tryggvadóttir

Mjög langt síðan ég bloggaði síðast! Reyni að vera duglegri í þessu...
Ég er búin að vera með einhvern skít síðustu vikuna, þreytt, hálsbólga og í eyranu. Samt einhvernvegin ekki nógu mikið til að ég geti kallað mig veika, svo ég hef enga afsökun fyrir að vera á hálfum hraða. En það er nú bara vika þangað til ég verð í chillinu á Flórída svo ég get nú ekki kvartað. Það verður allavega alveg nóg að gera þangað til. Byjaði prófundirbúninginn í dag, er ekki að fatta hvað það er stutt eftir af önninni. Bara tvær kennsluvikur. Tíminn hefur liðið svo hratt að það er ekki eðlilegt.

Lenti í því á mánudaginn að tölvan mín brást mér í hinsta sinn. FráBÆR tímasetning. Gat sem betur fer fengið tölvu að láni á meðan ég redda því, get ekki beðið því ég er með mac-a núna, sem er klárlega betra en ekkert, en ég kann voða takmarkað á hann.
Annars eru jólin komin hér. Allar búðir eru búnar að setja út jólaskraut eins og enginn sé morgundagurinn. Það er hins vegar mjög skrýtið að hlusta á jólalög og vera í jólastuði þegar það er 20 stiga hiti úti. Það virðist ekki ætla að koma neinn vetur hér strax. Hefur ekki sést í ský síðan í síðustu viku. Ótrúlegt en satt þá væri ég til í smá snjó, svo það verði gaman og jólalegt þegar ég skreyti! Er mikið að spá hvort ég eigi að kaupa jólatré, en ég óttast að það sé kannski smá overkill þar sem ég verð farin héðan um miðjan desember!?!

Jæja, ég er búin að vera að hlæja yfir Valentines Day á meðan ég skrifaði þetta blogg, svo ég ætla að kalla það gott í bili. Set eitt gamalt og gott úr Bridget Jones' Diary með...

Þangað til næst,
Nanna



MiđannarbrjálćđiđNanna Kristín Tryggvadóttir

Ég get ekki sagt að ég hafi setið auðum höndum síðan ég kom frá Illinois. Hef ekki einu sinni haft tíma til að horfa á alla þættina mína! :) En sem betur fer er til svo margt sniðugt hér í Bandó að ég get bara tekið upp þættina mína og horft á þá þegar ég hef tíma, sem verður vonandi einhverntíma fyrir jól! Er algjörlega að drukkna í hópverkefnum og öðrum lestri þessa dagana, þetta er s.s. ekki bara eitthvað sem íslenskir kennarar gera að "geyma" öll stór verkefni þangað til það er hægt að telja á fingrum annarrar handar hvað eru margar kennsluvikur eftir.

Annars er ég orðin óóótrúlega spennt að fara til Flórída eftir MINNA EN MÁNUРað hitta pabba sinn :) og auðvitað Elvar líka og Nönnu frænku. Þvílíkur lúxus sem það verður, taka 18 holur fyrir hádegi koma svo heim og "chilla" (læra) við sundlaugarbakkan. Bara gaman! Væri auðvitað miklu skemmtilegra ef momma sín gæti líka komið en svona er að vera orðin útivinnandi húsmóðir. Frekar súrt! (Djók, veit hún elskar það).
En mamma er nú ekki sú eina sem fer í kirkju á hverjum degi, jú okei kannski á hverjum degi, en ég gerðist nú svo merkileg fyrir Guði og kristnum mönnum að fara í messu á sunnudaginn síðasta. Fór í Duke Chapel, frægustu kirkjuna á svæðinu (dugar ekkert minna) með vinkonum mínum og það var bara alveg ótrúlega gaman! Ég á samt ennþá eftir að fara í svona alvöru HRESSA messu eins og í Sister Act, þar sem ég get fengið að syngja Oh Happy Day!
Skil ekki hvað grínistinn sem kallar sig borgarstjóra er að spá að ætla að taka kristnu gildin úr skólanum! Hvað ætlar hann þá að kalla páskafríin?

En núna er klukkan orðin 1 hjá mér og ég er að fara í Business Etiquette námskeið í fyrramálið og ég get ekki ímyndað mér að það sé smart að mæta með bauga og tilheyrandi ljótu sökum skorts á fegurðarblundi svo ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.

Þangað til næst,
Nanna



Einn gullmoli

Bloggar.is komiđ í lag aftur - HaustfríNanna Kristín Tryggvadóttir

Bloggar.is er búið að liggja niðri síðan á miðvikudaginn svo ég hef ekki getað skrifað nýtt blogg. 
Á fimmtudaginn síðasta byrjaði fall break í skólanum og út af því hvernig stundataflan mín er þá fékk ég viku frí út úr því. Ákvað því að nýta fríið í fara til Champaign, Illinois að heimsækja Elvar minn. 
Ég kom hingað á fimmtudaginn eftir hádegi eftir langt ferðalag, (ég, Abby, Maria og Kate lögðum af stað út á flugvöll kl 4.30) og ég fer ekki fyrr en á miðvikudaginn aftur. Champaign er aaaallt öðruvísi en Durham, það er allt slétt hérna og ég held að það séu 3 hús í öllum bænum sem eru hærri en 3 hæðir, doldið eins og Hvolsvöllur á sterum! En bærinn í kringum skólann er samt rosa krúttlegur, miklu meiri "bær" en Durham þar sem allt er ótrúlega dreift. Við fórum í bíó um helgina og mér leið eins og ég ég væri komin í einhverja bíómynd frá 1960, bíóið var með neon ljósum að utan og afgreiðslufólkið er í sparifötum með slaufu. Elska það! Ég er ótrúlega spæld að myndavélin mín sé biluð og ég get ekki tekið myndir hér.

Á fimmtudaginn er svo fyrsta prófið mitt í skólanum svo ég er nú ekki í algjöru fríi hérna hjá Elvari, nota tímann á meðan hann er í skólanum til að læra og dreg hann svo með mér á bókasafnið þess á milli, svaka gaman :)
Núna erum við bara að taka því rólega yfir CSI svo ég held ég hafi þetta stutt í dag.

Þangað til næst,
Nanna

Champaign

Lífiđ í DurhamNanna Kristín Tryggvadóttir

Þar sem ég er búin að vera hérna úti í tæpa 2 mánuði ákvað ég að það væri kominn tími á eins og eitt blogg til að skauta aðeins yfir það hvernig lífið hérna hefur verið.

Ég kom hingað 16. ágúst og mamma var svo góð að koma með mér og hjálpa mér að koma mér fyrir. Veit ekki alveg hvernig ég hefði farið að án hennar - væri allavega klárlega ekki komin með öll húsgögnin!
Fyrstu tvær vikurnar fóru í orientation, kynningu á náminu (Master of Engineering Management), bænum og lífinu í skólanum. 31. ágúst byrjaði svo skólinn. Ég er í þremur áföngum þessa önnina, Finance, Marketing og Project Management, og er rosalega ánægð með kennarana sem ég fékk.
Í prógramminu mínu (MEM) eru 150 nemendur tæplega og Duke leggur mikið uppúr því að kenna í minni einingum, ekkert ósvipað og HR gerði og stærstu tímarnir eru með u.þ.b. 60 nemendur. Um það bil helmingurinn af nemendunum er frá USA og hinn helmingurinn er að mestu leiti frá Asíu, en Ísland vinnur, eins og vanalega, þegar við reiknum út frá höfðatölu því við erum tvö hérna í náminu, ég og Maggi. Það sem fyndnara er að við vorum bæði á stærðfræðibraut í Verzló og bæði í Rekstrarverkfræði í HR.

Skólinn tekur nú mestan tímann frá manni, en krakkarnir í náminu eru líka flestir mjög aktívir svo það er alltaf eitthvað um að vera utan skólans líka. Stelpurnar hittast sirka vikulega og eru með Girls night þar sem við fáum okkur góðan mat og gott hvítt með. Þegar það eru heimaleikir hjá Duke byrjar partýið yfirleitt á morgnanna, og núna um helgina var svo útilega á kampus (myndin fyrir neðan er þaðan), þar sem fólk tjaldaði og þeir sem höfðu gott úthald (36 tímar) áttu séns á að vinna ársmiða á körfuboltaleiki Duke liðsins í vetur. Körfubolti hér er eiginlega hálfgerð trúarbrögð, ætli ég þurfi ekki að sjá það til að fatta hvað fólk er að tala um, en það eru allir að missa sig yfir honum hér a.m.k. En ég þarf allavega ekki að hafa áhyggjur af því að mér muni leiðast hér, það er nóg um að vera.

Ég held að ég eigi líka metið "Flestir gestir á sem styttstum tíma" en síðan ég kom hingað eru mamma, Elvar og Sandra búin að koma og heimsækja mig. Svo ég hef ekkert þurft að vera einmanna þótt ég sé ekki með meðleigjanda. Margir velja það hérna að leigja með einhverjum, einhverjum sem þeir þekktu ekkert fyrr en þeir ákváðu að leigja saman. Þeir sem þekkja mig, vita hvað ég ætti að vera spennt fyrir því! Wink
Í næstu viku er svo Fall Break hjá mér svo þá ætla ég að kíkja í viku upp til Illinois að heimsækja Elvar.

Það er búið að vera alveg svakalega heitt og rakt síðan ég kom hingað vel yfir 30° og sól. Í seinustu viku byrjaði hins vegar að rigna í fyrsta skiptið síðan um miðjan ágúst og það rigndi alveg fyrir allan peninginn í 4 daga. Núna finnur maður svo að haustið er að koma því það er farið að vera kaldara, á næturnar fer hitinn niður í ca 10° og upp í ca 24° yfir daginn sem er mjög þægilegt.

Ég gæti skrifað helling í viðbót, en held ég láti þetta duga í bili og fari að henda mér í háttinn. 
Skal reyna að vera dugleg að setja inn myndir svo, en myndavélin mín er biluð í augnablikinu en vonandi er hægt að laga hana og þá fer ég í málið. :) 


Þangað til næst,
Nanna


Íslendingarnir í útilegunni

Menningarsjokk...Nanna Kristín Tryggvadóttir

Jæja þá er maður aðeins búinn að melta íslenska loftið. Mikið rosalega var gott að koma aftur heim.
Eins og sumurin geta nú verið góð þá er ég meira fyrir rútínuna sem maður dettur í á haustin þegar allt kemst í eðlilegt horf.
Ég byrjaði í skólanum á mánudaginn og þar var ekkert farið neitt rólega af stað í hlutina. En mér líst samt ótrúlega vel á öll fögin í Rekstarverkfræðinni og er bara rosa spennt að fara í þetta á fullt.

Helga mín er flutt út. Yfirgaf mig á laugardaginn seinasta og kemur ekki aftur fyrr en um jólin! Ég veit ekki hvernig ég á eftir að fara að næstu mánuðina, enda vön að hitta stelpurnar mínar á hverjum degi! En það verða nú sem betur fer komin jól áður en maður veit af. Það er nú bara eins og það er.
 
Anna Kristín ákvað svo að hjálpa mér að komast yfir sorgina og bauð mér í dýrindis mat á laugardagskvöldið. Þegar líða tók á kvöldið ákváðum við svo að skella okkur í bæinn, enda menningarnótt. Ég ætla nú samt eiginlega rétt að vona að menningarnóttin endurspegli einungis lítillega menningu okkar íslendinga! Á Lækjartorginu var nefnilega allt morandi í krökkum, ekki mikið eldri en 15 ára með bakpokana fulla af bjór! Þetta var einhverntíma milli 2 og 3. Unglingarnir voru nú ekki þeir einu sem gengu fram af mer, áttu í raun minnstan þátt í því. Það sem gekk fram af mér var fólkið sem var á miðjum aldri, og þá miða ég við að þau nái 80-100 árum! Þetta fólk stóð ekki í lappirnar. Það gekk endanlega fram af mér þar sem ég var með Önnu og Pitta inná Torvaldsen, við bara í gúddí að dansa við Allt fyrir ástina hans Palla, þá lít ég aðeins í kringum mig. Það voru ekki eitt, ekki tvö heldur 3 "pör" -fólk sem var eflaust að hittast í fyrsta skipti- ekkert þeirra undir fertugu og þau voru öll í sóðalegustu subbusleikjum sem ég hef á ævi minni vitað! Mér blöskraði svo að ég stóð sjálfa mig að því að hafa hætt að dansa og stóð og horfði hneyksluð á þetta fólk sem vildi augljóslega taka þátt í að skapa menningarnótt okkar Íslendinga. Fljótlega eftir þetta yfirgáfum við Torvaldsen og fórum á Hverfisbarinn þar sem aldurshópurinn var mun yngri og mun penni!

Amma tók sig svo til á sunnudaginn og hóaði stórfjölskylduna í mat. Lambalæri með grilluðum kartöflum og bernés, það gerist nú ekki betra. Sandra Björk tók að sér að sitja við barnaborðið, það endaði auðvitað með því að það var haldin rop og grettukeppni og þau voru öll farin að setja hendur undir handarkrika og gera prumpuhljóð áður en þau náðu að byrja á fyrsta bitanum. Sandra tók að sjálfsögðu þátt í því öllu!


Þangað til næst,
Nanna Kristín

Dagur 40 - 3 eftirNanna Kristín Tryggvadóttir

Jæja þá er seinasti dagur minn hérna í Saint-Palais senn að kvöldi kominn. Fer með lestinni í fyrramálið til Parísar eftir 6 vikur hérna. Ótrúlegt en satt þá hefur tíminn bara liðið ansi hratt hérna.
Ég veit ekki hvort ég geti sagt að ég eigi eftir að sakna fjölskyldunnar, en hins vegar er reynslubankinn alveg í bullandi plús eftir undanfarnar vikur! Ætli ég verði ekki orðin svo heilaþvegin þegar ég kem heim að það fyrsta sem ég geri verði að setja allt í þvottavél, hengja uppá snúru og taka svo fram strauborðið. Held allavega að mamma sé að leggja allar sínar vonir í að ég taki við straujárninu heima!

Ég fer ekki frá Frakklandi öðruvísi en að hafa kynnst landinu og menningu með allt öðrum forsendum en hver annar túristi, sem ég er glöð með.  Borðaði meira að segja snigla í dag! Mér finnst líka alveg frábært að hérna fer maður bara út á horn í brauðbúðina og kaupir nýtt brauð á hverjum morgni, til fiskisalans á markaðnum og kaupir ferskan fisk og til bóndans á markaðnum og kaupir alveg nýja ávexti og grænmeti! Þetta er klárlega eitthvað sem ég ætla að gera meira af þegar ég kem heim!

Ég komst að því í gær að Embla er með hann Jón Tómas litla fyndna frænda minn á leikjanámskeiði þessar vikurnar. Ég hef ekki hitt hann í ég veit ekki hvað marga mánuði! En ég veit að hann fær alveg spes "frændi-hennar-Nönnu" meðferð á leikjanámskeiðinu þannig að ég býð bara eftir að heyra sögurnar hans frá því. Vonandi heldur amma bara matarboð með öllum eftir að mamma og pabbi koma frá Flóró og áður en að Kiddi frændi fer aftur út. Svo er ég líka að reyna að skipuleggja ferð í Gíslholtið seinustu vikuna í ágúst með Langagerðis(Logafoldar) stórfjölskyldunni - vona að þið séuð öll laus þá!

Annars kláraði ég að pakka í kvöld. Þriggja daga prósess! Ef taskan mín þolir ferðalagið til Parísar mun hún þola allt! Ég þurfti að sitja á henni eftir að ég stækkaði hana til að getað lokað henni alveg. Myndi giska á að hún væri svona 40 kíló. Sem betur fer er ég með aðra sem ég pakkaði niður í stóru til að taka með í flugvélina, en ég nenni ekki að ferðast með tvær í lestinni! En við erum sko að tala um vacumpökkun eins og hún gerist best!

Ég ætla nú bara að hafa þetta stutt í dag af því að ég þarf að vakna svo snemma í fyrramálið. Legg af stað til La Rochelle klukkan 9.30 - verð komin til Parísar klukkan 14 :D

À Bientôt,
Nanna Kristín

Ps. Á meðan ég man, stelpur ég held að það sé komið að okkur að sjá um næsta matarboð í matarklúbbnum, verðum að muna að tékka hvenær strákarnir koma næst til landsins!

Dagur 38 - 5 eftirNanna Kristín Tryggvadóttir

Jæja, núna vil ég bara að fara að komast til Parísar og svo drífa mig heim. Þetta er alveg komið gott takk.

Byrjaði að pakka áðan, þarf að gera það mjög skipulega svo ég komi nú öllu heim með mér.  Nenni líka ekki að þurfa að rífa allt uppúr töskunni þegar ég kem til Parísar. Svo þarf ég líka einvhernvegin að koma þessum kílóum af kryddi og tei fyrir sem ég er að taka með mér heim, án þess að það fari yfir allt.

Gamli er búinn að vera að eyða sínum dögum upp á síðkastið við að bora hér og þar. Er að reyna að koma internet snúrum inn í öll herbergin niðri. Hann var nú næstum því búinn að bora upp stofugólfið í gær, af því að hann trúði mér ekki þegar ég var að reyna að segja honum að herbergið mitt næði ekki þangað sem hann væri að bora og að baðherbergi stelpunnar við hliðiná væri á bakvið skápinn minn!
Síðan kom hann upp til mín í kvöld og sagði mér þessa líka svakalegu uppgötvun, að herbergið mitt næði ekki út fyrir stofuna og að baðherbergi stelpunnar væri á bakvið skápinn! Þá var hann auðvitað löngu búinn að gleyma því þegar ég sagði það við hann í fyrradag!

Í gær fórum við á nýja strönd. Það var nú ágætis dægrastytting en þvílíkt rokrassgat sem var þar, ég er ennþá að finna sand út um allt. Núna vorum við svo að koma af enn einni flugeldasýningunni. Ótrúlegt hvað fólk hefur gaman af þessu. Ekki það að mér finnist þetta eitthvað leiðinlegt, enda mjög mikið lagt í þessar flugeldasýningar. Kötturinn á heimilinu er samt alveg skelfilega hræddur við þær og hleypur alltaf undir rúm þegar hvellirnir byrja.
En talandi um köttinn, held ég hafi ekki minnst á hann áður, þá er þetta einn ofdekraðasti köttur í heiminum. Hann fær ferskar rækjur á hverjum degi og meðferð eins og hann sé konungsborinn. Svo þegar ég er að hlaupa niður að leggja á borðið í hádeignu eða kvöldin liggur hann í dyragættinni og hreyfir hvorki legg né lim svo maðu.r þarf bókstaflega að hoppa yfir hann. Svo situr hann í makindum sínum á stéttinni, ekki eins og venjulegir kettir gera heldur eins og gamall feitur maður, á rassgatinu með fæturnar fram fyrir sig!

En jæja það styttist í heimför og ég ætla að halda áfram að pakka!
Bonne soirrée
Nanna

Dagur 34 - 9 eftirNanna Kristín Tryggvadóttir

Undanfarnir dagar hafa verið voða rólegir. Bara þetta venjulega, þvottavél, snúran, strauja.
Gamli heldur áfram að endurtaka brandarana sína og hlær alltaf jafn mikið af þeim! Við héldum matarboð hérna á fimmtudagskvöldið og hann var algjörlega "on fire" svo ég sletti nú aðeins! Segja sögur af hinu og þessu og náði alltaf að skjóta inn í þær einhverju sem hann sagði sem honum fannst líka svona afskaplega fyndið!

Föstudagurinn og laugardagurinn voru svo bara rólegir á ströndinni. Guðrún frænka hringdi í mig á föstudaginn og bað mig um að athuga hvort það væri hægt að fá fersk lárviðarlauf hérna. Ég í sakleysi mínu varpaði spurningunni áfram til Isabelle sem svaraði mér þannig að hún hló bara afskaplega. Það fyrsta sem mér datt í hug var að ég hefði orðað spurninguna kjánalega eða eitthvað álíka. Svo var þó ekki því hún náði rétt að stoppa og draga andann og segja mér að allt hekkið í garðinum hjá okkur væri Lárviður þannig að það væri nóg af lárviðarlaufum í garðinum. Ví ð hádeigismatarborðið var þetta svo aðalsagan að segja gamla og gerpinu. Heyrðu gamli stekkur til og bendir mér á einhverja litla hríslu og vill ólmur að ég taki tréð með mér heim svo ég geti alltaf fengið fersk lárviðarlauf. Ég er farin að óttast það svolítið að verða stoppuð í tollinum, því að ég er örugglega með kíló af allskonar kryddum og fullt af einhverjum laufblöðum slatta af tei og kaffi og tala nú ekki um ef ég ætla svo að fara að burðast með einhverja hríslu líka. Ætli ég endi ekki með því að bjóða tollvörðunum bara að smakka!

Ég gelti eins og hundur allar nætur orðið, er orðin ansi þreytt á þessum endalausa hósta! Er farin að súpa hóstameðalið eins og það sé vatn. Það er hins vegar að skila takmörkuðum árangri! Vonandi verð ég samt orðin góð fyrir París.

Jæja eins og ég þá eru þær nú ekki safaríkar sögurnar af nýliðnum dögun, enda Verslunarmannahelgi og svona! Næsta áramótaheiti mitt verður klárlega að vera heima um næstu verslunarmannahelgi! Held að ég sé búin að vera í útlöndum seinustu 3 ár á þessum tíma. Laban í fyrra og Flórída árið þar áður, gott ef ekki árið þar á undan líka! Um næstu verlsunarmannahelgi langar mig að vera í útilegu.

En ég segi þetta gott í bili,
À bientót,
Nanna

Dagur 30 - 13 eftirNanna Kristín Tryggvadóttir

Jæja eftir akkúrat 2 vikur þá verð ég komin heim í Vesturhúsin :D - ég er orðin ótrúlega spennt að komast heim, þótt svo þetta sé nú svosem ágætt hérna, þá fer þetta að verða komið gott bráðum. Talaði við hana ömmu mína á mánudaginn og þá sagði hún mér að hún og afi ætla að koma að sækja mig út á völl. Ég varð alveg afskaplega glöð að heyra það enda sakna ég þeirra alveg ógurlega.

Svo komst ég að því í gær að hún Helga mín fer út 18.ágúst en ekki 20. eins og var upphaflega planið, þannig að allt í einu höfum við bara 4 daga saman áður en hún fer! En það er Pizza Hut ferð á dagskrá sem betur fer, og þétt plan á meðan við erum báðar á Íslandi, sem verða dagar 14 - 18 í sumar! Vá Helga varstu búin að átta þig á því að við erum bara búnar að vera báðar á Íslandi í 13 daga það sem af er sumars! Jahérnahér!

Haldiði að það hafi ekki bara helst yfir mig þetta líka ljómandi skemmtilega kvef hérna fyrir 3 dögum síðan, með tilheyrandi hálsbólgu, hæsi og hósta. Röddin er nú að koma til baka hægt og rólega sem betur fer, enda er ég búin að vera að bryðja einhverjar ógeðslegustu hálstöflur sem gerðar hafa verið í heiminum! Þær heita Drill og ég vil meina að þær hafi upphaflega verið gerðar sem refsing fyrir óþekk börn sem ætluðu að stelast í nammi! Þau börn hafa ekki smakkað nammi síðan!

Ég lét kvefið hins vega ekki stoppa mig og skellti mér til Royan á mánudaginn í smá verslunarleiðangur. Mér fannst ég bara eiga það skilið! Ég hef ekki getað verslað neitt hingað til af því að ég er alltaf með famillíunni, og ég bara nenni ekki að versla eða máta með eitthvað fólk hangandi yfir mér. Ég datt inn á þessa líka fínu útsölu þarna hjá Marc vini mínum og kom aftur einu pilsi og skópari ríkari.
Þótt svo að þessi fjölskylda hérna sé alveg óheyrilega rík, (allavega fæ ég að heyra það daglega frá gamla hvað hann sé rosa ríkur og eigi mikið af eignum) þá fá allir fjölskyldumeðlimir samt sem áður illt í magan ef eitthvað kostar meira en 1500 kall þannig að ég ákvað að vera ekkert að segja þeim að ég hafi keypt neitt meira en After Sun, sem mig var farið að vanta rosalega!

Í gær var svo fullur vinnudagur á ströndinni. 7 tíma vakt. Skelltum okkur á stóru ströndina og það kom ekki skýhnoðri allan daginn. Lenti hins vegar þrisvar í árás frá 20 cm löngum geitungum. Þeir sem þekkja mig vita hversu illa mér er við allar flugur, þótt það sé ekki nema hrossafluga eða húsfluga, þannig að það má rétt ímynda sér viðbrögðin þegar ég lenti í þessari árás! Ég sem er búin að vera að taka þrefaldan skammt af B vítamíni til þess að fæla burtu flugurnar! Þarf greinilega að fara að detta á einhverjar aðrar lausnir til að halda þessum skrímslum í burtu ef ég fer aftur á stóru ströndina eftir þetta áfall! Ef einhverjir eru með einhver ráð, þá þigg ég þau glöð.
Ég náði ekkert að brenna þrátt fyrir að hafa ekki farið upp fyrir vörn SPF 6 og liggjandi í skjannahvítum sandi með tæran sjóin í 2-3 metra fjarlægð í, grínlaust, 7 tíma! Á meðan þá náðu móðirin og dóttirin, sem eiga að eigin sögn að vera með alveg afskaplega tan friendly húð, að brenna. Þrátt fyrir að hafa aldrei farið undir SPF 12! Ég fer ekki af því, mér finnst þetta alveg stórfurðulegt! Undir öllum eðlilegum kringumstæðum ætti húðin að vera skorpnuð af mér núna af brunasárum.

Ég á ströndinni

Í dag tóku svo heimilisverkin við á ný. Þvotturinn, strjaujárnið og skúringarfatan. Ég ákvað svo að eyða seinnipartinum á ströndinni þar sem ég, olían, Celine Dion og Draumalandið áttum notalega stund. Við kvöldmatarborðið var svo rennt yfir sjúkrasögu fjölskyldunnar. Krakkarnir hafa sem betur fer aldrei lent í gipsi (eða er það gifsi?) en stelpan hefur samt einu sinni puttabrotnað. Þegar sú umræða kom upp vildi litla gerpið endilega sýna mér þumalputta nöglina sína, sem er svona örlítið flatari en hin, en hann lenti víst í svakalega slæmu samstuði þegar hann var að spila hokkí einhverntíma! Gamli var reyndar farin frá borðinu til að lesa bókina sína þegar röðin kom að honum þannig að ég er ekki en búin að ná því hvað hefur komið fyrir hann, en ætli það sé ekki eitthvað ótrúlegt og svakalega lífshættulega alvarlegt sem hann lifði af, ef ég þekki hann rétt! Mamman hefur hins vegar fótbrotnað tvisvar. En ég nenni eiginlega ekki að fara nánar út í það því það var ekki skemmtileg saga!

Á morgun á svo að fara að tína skelfisk í kvöldmatinn. Veit ekki alveg hvað hann heitir á íslensku en það heitir Moules hér og er í svörtum skeljum sem eiga að opnast þegar þeir eru eldaðir, ef það hjálpar einhverjum að skilja!
Ég tók mig til fyrsta daginn og laug því að ég væri með ofnæmi fyrir þessu þar sem að sú regla gildir hér að klára af disknum og ég hreinlega bara ákvað að taka ekki þá áhættu þar sem þetta lítur ekkert afskaplega vel út, og á þessum árstíma er þetta allt fullt af litlum kröbbum! Þar af leiðandi má ég velja hvort ég fer með á morgun að vaða í einhverri leðju að leita af skeljum fyrir fjölskylduna að borða eða vera heima og dúlla mér á ströndinni eða heima í rólegheitunum.
Ætli seinni kosturinn verði ekki fyrir valinu. Þrátt fyrir gífurlega magn af "alone time" hingað til eða "quality hours" eins og ég kýs að kalla þá, þá er engu að síður afskaplega þægilegt að þurfa ekki að vera að stressa sig yfir þvottinum eða matnum eða einhverju yfir höfuð alltaf hreint!

Vonandi heldur sólin áfram að skína hérna í Saint Palais næstu 2 vikurnar!
Fyrir áhugasama er hægt að fara á www.saint-palais-sur-mer.com og fylgjast með bæjarlífinu ;o)

Bon soireé,
Nanna Kristín

Dagur 27 - 16 eftirNanna Kristín Tryggvadóttir

Ég er ekki lengur ein! Ég er loksins búin að kynnast venjulegu fólki hérna :D
Gamli maðurinn í húsinu við hliðina á okkur á semsagt barnabarn, Jean Philippe, sem ákvað að koma í 2 daga heimsókn til afa gamla í vikunni. Á fimmtudagskvöldið var hann svo almennilegur að bjóða mér með sér og nokkrum vinum út. Þar sem ég þekki engan hérna, jahh fyrir utan fjölskylduna, ákvað ég að slá til. Þessir vinir hans voru semsagt 3 systkyn, Emily, Pierre og Maxim, og Antoin vinur Pierre, sem eru öll frá París. Þetta var án efa skemmtilegasta kvöldið mitt í Frakklandi hingað til. Byrjuðum á að setjast niður og fá okkur nokkra drykki og fórum svo á skemmtistað hérna rétt hjá sem er víst aðalstaðurinn í þessu sveitahéraði! Ég er nokkuð viss um að það sé nú ekki úr miklu að moða á þessu svæði, en það er sama, staðurinn stóð alveg undir væntingum. Vorum meira að segja svo heppin að það kvöldið var dragkeppni á staðnum þannig að það var frekar fjölmennt.

Ég lærði að dansa Rock'n'roll, sem er víst einhver "upperclass Parisian" dans - ég verð nú að viðurkenna að mér fannst hann mun skemmtilegri en dans ársins sem við lærðum í Versló í vetur! Viddi og Ingveldur ættu kannski að kynna sér Rock'n'roll og kenna hann næsta vetur! 
Eftir nokkra klukkutíma af rock'n'roll lokaði Rancho (staðurinn) þannig að við ákváðum að rölta heim til systkinana og fá okkur seinasta bjórinn við sundlaugarbakkann! Jean þurfti samt að fara heim af því að hann var að fara aftur til Parísar kl 9 morguninn eftir.
Þegar við vorum svo búin að plana að ég myndi hitta Pierre, Antoin og Emely aftur í næstu viku, og Maxim í París til að kynnast nánar næturlífinu hérna í Frakklandi ákvað ég að halda heim á leið. Fegin yfir að hafa loksins hitt fólk sem nennir að gera eitthvað annað en að tuða og hlægja af eigin fyndni eða dást af eigin gáfum!

Á föstudaginn var svo taka tvö í tiltekt enda von á frændfólki um kvöldið! Ég er alveg viss um að litla gerpið er skotinn í frænku sinni, sem er btw jafn gömul honum! Hann var svo skuggalega hjálpfús í eldhúsinu, lagði á borðið, ákvað svo að sitja í öndvegi á móti pabba sínum og hjálpaði svo að taka til eftir matin! Kom öllum virkilega í opna skjöldu! Síðan er hann búin að vera með svaka sýndarmennsku takta og eiginmannsefnis auglýsingu á sjálfum sér með því að opna hurðina fyrir frænku sína, bjóða henni í göngutúr og ég veit ekki hvað og hvað! Má svona?  

Í gærmorgun fórum við svo í ótrúlega lítin og sætan ekta franskan smábæ! Röltum um mjóu göturnar og kíktum í fullt af pínulitlum búðum og eina ótrúlega fallega kirkju sem var gerð á 11. öld! Við ætluðum svo að eyða restinni af deginum á ströndinni en þar sem ekki sást til sólar varð eitthvað lítið úr því! Upp kom hugmynd um að fara í mini golf og ég ákvað að leyfa fjölskyldunni bara að fara saman og var heima. Var ekki alveg í stuði fyrir að fara í keppnisleik við gerpið og gamla! Það hefði getað endað illa! Kom þó í ljós þegar þau komu aftur að hvorugur vann, en mikið afskaplega voru þeir báðir nálægt því!

Núna erum við hins vegar á leiðinni á flóamarkaðinn, og vonandi léttir svo til þannig að það sé hægt að fara í sólbað eftir hádeigi!

À Bientôt
Nanna Kristín

Ps. ég setti inn nýjar myndir á myndasíðuna http://picasaweb.google.com/nannakristin/Frakkland

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Hlakka til :D